KredittBanken, dótturfélag Íslandsbanka, hefur vilyrði fyrir yfir 50% af hlutabréfum í FactoNor. KredittBanken mun í framhaldinu gera tilboð í öll hlutabréf í FactoNor. FactoNor AS er eins og KredittBanken staðsettur í Álasundi. FactoNor sérhæfir sig í veltufjármögnun og kröfukaupum fyrir smá og miðlungsstór fyrirtæki í norðvesturhluta Noregs.

FactoNor velti um 2,8 milljörðun norskra króna (um 28 milljörðum ísl. króna) í kröfukaupum árið 2004. Vöxturinn var 19% frá árinu áður. Markaðshlutdeild á landsvísu var 4% árið 2004 en markaðshlutdeildin í norðvesturhluta landsins er mun meiri.

Góð afkoma hefur verið á rekstri FactoNor undanfarin ár og árið 2004 var hagnaður fyrir skatta um 4,6 milljónir norskra króna (um 46 milljónir ísl. króna). Miðað við það verð sem KredittBanken býður hluthöfum þá er virði fyrirtækisins um 52,8 milljónir norskra króna (um 528 milljónir ísl. króna).

Með kaupunum er KredittBanken að víkka út starfsemi sína í norðvesturhluta Noregs og styrkir það vaxtarmöguleika beggja fyrirtækja með sameiginlegri markaðssetningu og breiðara vöruframboði

Til þess að kaup KredittBanken á FactoNor gangi endanlega í gegn þarf samþykki norskra yfirvalda.