Kristín Eysteinsdóttir tekur við stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi í leikhúsinu klukkan ellefu í morgun. Stjórn leikfélags Reykjavíkur boðaði starfsmenn leikhússins til fundarins í morgun.

Kristín Eysteinsdóttir hefur lokið námi bæði í Lundúnum og Árósum. Kristín hefur leikstýrt fjölda verka hjá leikhúsinu og hlotið Grímuverðlaun. Hún er fædd 1974.