Kristinn Þór Geirsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Fjármála og- rekstrarsviðs Glitnis [ GLB ] keypti í morgun hlut í félaginu fyrir um 994 milljónir.

Um er að ræða 58,8 milljón hluti á genginu 16,9 en hluturinn er keyptur í nafni KÞG Holding ehf. sem er í eigum Kristins Þórs.

Þá keypti Haukur Guðjónsson, sem tekið hefur sæti Kristins í stjórn Glitnis, hlut í félaginu fyrir tæplega 328 milljónir. Um er að ræða tæplega 19,4 milljón hluti á genginu 16,9 sem keyptir eru í nafni HG Holding ehf.

Glitnir hefur hækkað um 0,3% það sem af er degi í Kauphöllinni og er gengi félagsins nú 17,05. Velta með hlutabréf í félaginu eru í dag um 1,8 milljarðar.