Kristján Þór Júlíusson hlaut afgerandi kosningu í efsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Eftir að talningu lauk kom í ljós að hann fékk rúmlega 84% atkvæða í fyrsta sætið. Tryggvi Þór Herbertsson sem stefndi einnig á efsta sætið náði engu af þeim sex sætum sem bindandi kosning var um.

Á kjörskrá við lok kjörfundar voru 4401 manns. Alls greiddu 2714 atkvæði, kjörsókn var því 61,7 %. Auð og ógild voru 78 atkvæði. Níu einstaklingar buðu sig fram í prófkjörinu og kosið var um sex sæti. Niðurstaðan er bindandi fyrir þá frambjóðendur sem hlutu 50% greiddra atkvæða.

Niðurstöður eru eftirfarandi:

Í 1. sæti var Kristján Þór Júlíusson með 2223 atkvæði.

2.  (í 1.-2. sæti) var Valgerður Gunnarsdóttir með 1291 atkvæði.

3.  (í 1.-3. sæti) var Ásta Kristín Sigurjónsdóttir með 1158 atkvæði.

4.  (í 1.-4. sæti) var Jens Garðar Helgason með 1278 atkvæði.

5.  (í 1.-5. sæti) var Erla S. Ragnarsdóttir með 1529 atkvæði.

6.  (í 1.-6. sæti) var Bergur Þorri Benjamínsson með 1752 atkvæði.

Aðrir hlutu færri atkvæði.