Gengisvísitalan er nú 154,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,9% frá opnun markaða í morgun en 2,6% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær. Krónan styrktist verulega undir lok dags í gær eða rúmlega 1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154,8 stig en var í gær 158,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 120,4 krónum, Bandaríkjadalur í 77,7 krónum og Sterlingspundið í 151 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 73,7 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum.