Gengisvísitalan er nú 171 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 2,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en um 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 171 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var á föstudag 168,4 stig.

Eins og fyrr segir er opinbert gengi í morgun það hæsta frá upphafi. Áður náði gengisvísitalan hámarki síðastliðinn miðvikudag þegar opinbert gengi Seðlabankans var 169,2 stig.

Á þriðjudaginn síðasta náði gengisvísitalan hins vegar hámarki á mörkuðum þegar hún fór um stund yfir 170 stig í fyrsta skipti þannig að markaðsgengi gengisvísitölunnar nú er líka það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 2,9% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 91,7 krónum, Evran í 130 krónum og Sterlingspundið í 164 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 81,8 krónum, japanskt jen í 0,87 krónum og danska krónan í 17,4 krónum.