Gengisvísitalan er nú 160,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá opnun í morgun og um 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,1 stig en var í gær 160,5 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,4 krónum, Evran í 125,0 krónum og Sterlingspundið í 158,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,8 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.