Gengisvísitalan er nú 162,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 2,5% frá opnun í morgun og um 2,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 161,9 stig en var í gær 165,8 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 80,5 krónum, Evran í 126,6 krónum og Sterlingspundið í 160,1 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,8 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 17,0 krónum.