Gengisvísitalan er nú 170,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,9% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Krónan styrktist um rúm 2% á föstudag eftir að hafa veikst alla vikuna og hefur haldið áfram að styrkjast í morgun og gengisvísitalan hafði um tíma farið undir 170 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 170,3 stig en var á föstudag 173 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,4% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 89,5 krónum, Evran í 130,5 krónum og Sterlingspundið í 165 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 81,6 krónum, japanskt jen í 0,84 krónum og danska krónan í 17,5 krónum.