Gengisvísitalan er nú 153,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,3% frá opnun markaða í morgun en 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,3 stig en var í gær 154 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119 krónum, Bandaríkjadalur í 77 krónum og Sterlingspundið í 150,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.