Gengisvísitalan er nú 155,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,9% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 1,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Krónan veiktist verulega á markaði á föstudag eða um 2,6%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 155,3 stig en var á föstudag 153,2 stig.

Krónan hefur veikst um 1,5% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 76,6 krónum, Evran í 121,5 krónum og Sterlingspundið í 152,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 74,8 krónum, japanskt jen í 0,72 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.