Gengisvísitalan er nú 166 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,1% frá opnun í morgun en um 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 165,9 stig en var í gær 168,9 stig sem er hæsta opinbera gengið frá upphafi.

Krónan veiktist nokkuð í fyrradag eða um 3% og veiking hennar hélt áfram í gærmorgun. Hins vegar styrktist hún seinni part gærdagsins og hafði við lok markaða styrkst um 0,2%.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Evran nú í 129,1 krónu, Bandaríkjadalur í 82,9 krónum og Sterlingspundið í 163,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,6 krónum, japanskt jen í 0,77 krónum og danska krónan í 17,3 krónum.