Gengisvísitalan er nú 153,5 stig samkvæmt vef Landsbankans og hefur krónan því styrkst um 2,7% í dag. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 155,5 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Þegar þetta er skrifað, kl. 11:20 stendur Evran í 120,25 krónum, dollarinn 76 krónum og sterlingspundið í 151,1 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,5 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum.