Gengisvísitalan var í lok dags 148,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,7% frá opnun markaða í morgun en 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,7 stig en var í gær 146,4 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 116 krónum, Bandaríkjadalur í 74 krónum og Sterlingspundið í 145,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,4 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.