Gengisvísitalan var í lok dags 153 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,35% frá opnun markaða í morgun.

Hins vegar veiktist krónan nokkur hratt undir lok dags á föstudag og hefur krónan nú veikst um 2,1% frá opinberu gengi Seðlabankans síðastliðinn föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,7 stig en var s.l. föstudag 149,8 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119 krónum, Bandaríkjadalur í 76,8 krónum og Sterlingspundið í 151 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 72,8 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum