Gengisvísitalan var 156,2 stig við lokun markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá opnun í morgun en 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 155,9 stig var í gær 155 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 121,8 krónum, Bandaríkjadalur í 79 krónum og Sterlingspundið í 153,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,5 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.