Gengisvísitalan var 180,1  stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hafði um tíma í dag veikst um 3% þannig að nokkuð hefur dregið úr veikingu hennar nú seinni hluta dagsins.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð en miðað er við lokagengi á mörkuðum.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 184,1 stig sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 177,4 stig.

Krónan hefur nú veikst um 4,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 32,6% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi í byrjun árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 94,7 krónum, Evran í 138 krónum og Sterlingspundið í 173,8 krónum. Evran fór um tíma í dag upp í 140 krónur.

Þá stendur svissneskur franki í 86,8 krónum, japanskt jen í 0,89 krónum og danska krónan í 18,5 krónum.