Gengisvísitalan var 206,7 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur veikst um 1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist um 2,4% í gær en hreyfðist lítið fram eftir degi. Rétt fyrir klukkan hálf tvö fór hún þó að sveiflast en þó ekki mikið. Lægst fór gildi hennar í 205,5 stig en hæst í 207,1 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt lokagengi á mörkuðum.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 206,7 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 204,7 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 12,9% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 22,2% á einum mánuði og um 41,3% frá áramótum.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 112 krónum, Evran í 155,9 krónum og Sterlingspundið í 200,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 99,8 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,7 krónum.