Kvika banki hf. hagnaðist um 1.023 milljónir króna á fyrri helmingi ársins, sem er 8% aukning frá sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár fyrir skatt nam 18,5%, og eigið fé bankans 12,2 milljörðum í lok júní.

Vaxtatekjur voru rúmir 2,2 milljarðar og drógust saman um rúm 11% frá sama tímabili síðasta árs, en á móti drógust vaxtagjöld saman um 16% og námu rúmum 1,4 milljarði, og þóknanatekjur jukust um rúm 46% í rétt tæpa 2 milljarða.

Rekstrarhagnaður bankans nam rúmum 3 milljörðum og var 18% hærri en í fyrra, en stjórnunarkostnaður hækkaði um rúm 23% í tæpa 2 milljarða vegna 30% hærri launakostnaðar stjórnenda.

Eignir í lok júní námu 103,4 milljörðum króna, sem er 37% hærra en í ársbyrjun, og skuldir 91,2 milljörðum, 41% aukning. Eigið fé nam sem áður segir 12,2 milljörðum, sem er rúm 11% aukning.

Eiginfjárhlutfall bankans var 24,6%, sem er sagt umtalsvert umfram 20,25% kröfu FME í tilkynningu um málið . Því er sagt töluvert svigrúm til „arðgreiðslna eða annarra sambærilegra aðgerða.“

Handbært fé nam 38,5 milljörðum, og lausafjárhlutfall 324% í lok júní.

„Öll tekjusvið Kviku skiluðu hagnaði á fyrri árshelmingi. Mikil breyting hefur orðið á tekjum og arðsemi eignastýringar bankans í kjölfar kaupa bankans á Virðingu og Öldu sjóðum á sl. ári. Framlegð hennar fyrir samkostnað á fyrstu sex mánuðum ársins nam 568 milljónum króna og var rúmlega 350 milljónum krónum hærri en á sama tímabili árið 2017. Rekstur fyrirtækjasviðs gekk mjög vel á tímabilinu og hagnaður fyrirtækjaráðgjafar jókst talsvert á milli ára. Hins vegar var afkoma markaðsviðskipta og eigin viðskipta bankans talsvert verri en árið á undan og endurspeglar minni veltu og talsverðar verðsveiflur á verðbréfamörkuðum.“ segir í tilkynningunni.

Þá segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku: „Þrátt fyrir að rekstrarumhverfi bankans sé að mörgu leyti krefjandi um þessar mundir hefur rekstur hans gengið í samræmi við áætlanir. Hlutabréfamarkaður á Íslandi hefur verið með daufasta móti og velta verið lítil. Íslenskir stofnanafjárfestar hafa verið atkvæðalitlir á markaði, þátttaka einstaklinga er lítil og dregið hefur úr fjárfestingu erlendra sjóða, ef horft er framhjá frumútboði Arion banka.“

„Líkt og önnur íslensk fyrirtæki hefur bankinn ekki farið varhluta af miklum launahækkunum undanfarinna ára sem hafa aukið kostnað umtalsvert. Íslenskar reglur um kaupauka eru mun strangari en í flestum Evrópulöndum og takmarka möguleika bankans til að aðlaga launakostnað að rekstrarárangri. Þetta hefur leitt til þess að föst laun eru mun hærri en æskilegt getur talist í rekstri banka eins og Kviku.“