Samið hefur verið við UBS fjárfestingabankann og Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótun Landic Property.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landic Property en þar er tekið fram að í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sé nú unnið að því að móta nýja stefnu fyrir félagið.

„Vinnan felur meðal annars í sér úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það að markmiði að styrkja fjárhagsstöðu þess og er unnin í nánu samstarfi við helstu kröfuhafa félagsins,“ segir í tilkynningu félagsins og tekið er fram að niðurstöðu sé að vænta innan fárra vikna.

Þá kemur fram að einn liður í viðræðum um fjárhagslega endurskipulagningu eru samningar Landic Property við eigendur skuldabréfaflokksins STOD 09 0306 sem var með vaxtagjalddaga í desember.

Fram kemur að farið hefur verið fram á að greiðsla vaxta frestist til 6. mars 2009 og greiðist samhliða höfuðstól á þeim degi. Unnið er að því að fá undirritað samþykki skuldabréfaeigenda við ofangreindum skilmálabreytingum