Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landsbanki Íslands (gamli Landsbankinn) hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en eftirlitið hefur heimilað hann. Sektin nemur 40 milljónum króna. Um er að ræða félög sem bankinn tók yfir í apríl 2009, þegar gert var samkomulag við milli bankans, Magnúsar Kristinssonar, Smáeyjar ehf. og tengdra félaga.

Í tilkynningu frá eftirlitinu kemur fram að brot LÍ fólst í því að taka yfir sex félög, sem áður voru í eigu Bergeyjar eignarhaldsfélags ehf., og selja öll félögin að einu undanskildu til þriðja aðila. Þetta gerði bankinn áður en hann tilkynnti Samkeppniseftirlitinu um yfirtökur sínar á félögunum og um sölu á þeim. LÍ braut því gegn skyldu til að tilkynna um samrunna samkvæmt samkeppnislögum og banni við að framkvæma samruna áður en eftirlitið fjallar um hann. Þetta átti sér stað á árunum 2009 og 2010, en Samkeppniseftirlitinu varð kunnugt um þessa gerninga á árinu 2010.

Í samkeppnislögum er lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. Jafnframt er skylt að tilkynna samruna til eftirlitsins. Er þessari reglu ætlað að tryggja að samrunaákvæði samkeppnislaga nái markmiði sínu. Er sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu. 

Um er að ræða félögin Bílaleigu Flugleiða ehf., Toyota á Íslandi hf., M. Kristinsson ehf., Pizza-Pizza ehf., Sólningu Kópavogi ehf. og Bergey fasteignafélag ehf. Í tilkynningu segir:

„Í apríl 2009 var gert samkomulag milli LÍ, Magnúsar Kristinssonar, Smáeyjar ehf. og tengdra félaga sem fól í sér að LÍ tæki yfir hlutabréf Bergeyjar eignarhaldsfélags ehf. í tilteknum félögum. Bergey eignarhaldsfélag ehf. var þá að fullu í eigu Smáeyjar ehf.

Kaupsamningur um yfirtöku LÍ á félögunum var síðan gerður þann 1. júlí 2009. Samkvæmt LÍ var yfirtakan liður í fullnustugerð á hendur fyrrnefndum aðilum.  Félögin M. Kristinsson ehf., Sólning Kópavogi ehf. og Bergey fasteignafélag ehf. voru síðan öll seld eignarhaldsfélaginu Bifreiðar ehf. þann 4. ágúst 2009. Sama dag seldi LÍ jafnframt félagið Pizza Pizza ehf. til eignarhaldsfélagsins Pizzasmiðjunnar ehf. Bílaleiga Flugleiða var svo seld félaginu Norðurlöndin ehf. þann 26. febrúar 2010. Tilkynning LÍ til Samkeppniseftirlitsins um yfirtöku á dótturfélögum Bergeyjar eignarhaldfélags ehf. er dagsett 16. júní 2010.“