Landsbankinn hf. mun í dag að eigin frumkvæði greiða fyrirfram inn á skuld sína við LBI hf. Greiðslan verður innt af hendi í erlendri mynt og jafngildir um 50 milljörðum króna.

Greiðslan gengur inn á höfuðstól skuldabréfanna og lækkar hlutfallslega greiðslubyrði bankans vegna þessarar skuldar sem á að koma til greiðslu á árunum 2014 til 2018. Fyrsti umsamdi gjalddagi skuldabréfanna er í janúar 2014 og sá síðasti í október 2018.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að sterk lausafjárstaða bankans í erlendri mynt geri honum kleift að lækka skuld sína í erlendri mynt hraðar en samningar kveði á um. Fjármagnskostnaður bankans muni lækka vegna þessarar fyrirframgreiðslu og um leið verði dregið verulega úr veðsetningu á eignum bankans. Lausafjárhlutfall bankans í erlendri mynt verði áfram hátt og muni standast að fullu nýjar kröfur Seðlabanka Íslands þar að lútandi.

„Landsbankinn mun áfram þurfa á endurfjármögnun að halda áður en kemur að gjalddögum skuldabréfanna árið 2016. Eins og fram kom í tilkynningu bankans 3. október síðastliðinn á bankinn í viðræðum við LBI hf. um breytingar á  skilmálum skuldabréfanna, þar með talið lengingu á lánstíma þeirra,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum