Eignarhaldsfélag Landsbanka Íslands (NBI) er hæft til að fara með virkan eignarhlut í Rose Invest hf. sem nemur svo stórum hluta að Rose Invest verður dótturfyrirtæki þess. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Ákvörðun FME var tekin þann 25. febrúar síðastliðinn.

Þann 22. desember sl. var tilkynnt að Landsbankinn hefði keypt 51% hlutafjár í Rose Invest hf., rekstrarfélagi verðbréfasjóða í eigu Sigurðar B. Stefánssonar og Svandísar Rúnar Ríkarðsdóttur, sem stofnað var í desember 2008.

Viðskiptablaðið fjallaði um kaupin í byrjun febrúar. Samkvæmt heimildum blaðsins er Landsbankinn með kaupunum að einfalda yfirfærslu sjóða Landsvaka yfir í nýtt félag. Þeir sjóðir sem eftir verða í Landsvaka eru í slitum á meðan sjóðirnir sem eru í lagi verða færðir í nýtt félag.

Margar kröfur á Landsvaka

Sjóðir Landsvaka munu færast yfir til Rose Invest eftir að óháðir aðilar hafa metið sannvirði sjóðanna. Þeir verða síðan keyptir yfir og andvirðið skilið eftir inni í Landsvaka ásamt þeim sjóðum sem eru í slitum. Við þetta á að skapa skil milli fortíðar og framtíðar í sjóðarekstri Landsbankans.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er tilgangur þessa einnig sá að losa rekstrarfélag starfandi sjóða Landsbankans undan ábyrgð á því sem gerðist innan Landsvaka fyrir hrun, en nokkrum sjóðum félagsins var slitið og hlutdeildarskírteinishöfum greitt út í samræmi við það sem fékkst fyrir eignir sjóðanna.

Nú þegar hafa mörg dómsmál verið höfðuð gegn Landsvaka vegna þessa auk þess sem sérstakur saksóknari rannsakar nú kaup á 400 milljóna króna skuldabréfi sem fjárfestingarsjóður Fyrirtækjabréfa Landsbankans keypti af Björgólfi Guðmundssyni árið 2005. Kaupin voru ekki samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins þar sem hann átti einungis að fjárfesta í skuldabréfum traustra fyrirtækja og fjármálastofnana, ekki einstaklinga.