Landsbankinn hefur ákveðið að beita innlausnarrétti í hlutabréf í Teather & Greenwood, að því er tilkynnt hefur verið ítil kauphallarinnar í London.

Landsbanki Islands hf. og Landsbanki Holdings (UK) annað hvort eiga beint eða hafa tryggt sér yfirráð samkvæmt yfirtökuboðinu fyrir samtals 48.446.365 hlutum í Teather & Greenwood. Þetta samsvarar um það bil 93,0% af útistandandi hlutafé Teather & Greenwood sem tilboðið nær til.
Þar sem nægilegur fjöldi hefur þegar samþykkt tilboð Landsbanki Holdings (UK) hyggst félagið notfæra sér heimildir í 428 til 430F gr. í ensku hlutafélagalögunum (Companies Act 1985) til innlausnar þeirra hlutabréfa sem það hefur ekki þegar eignast.

Þar til tilkynnt er um annað geta hluthafar Teather & Greenwood þó áfram gengið að yfirtökuboðinu í samræmi við skilmála þess.