Landsbankinn hefur ákveðið að taka tilboði Uxahryggja ehf. í iðnfyrirtækið Límtré Vírnet. Uxahryggir ehf. urðu til fyrir tilstuðlan heimamanna á Vestur- og Suðurlandi þar sem starfsemi fyrirtækisins, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

Skrifað verður undir kaupsamning síðar í dag í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Borgarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum verður einnig greint nánar frá innihaldi samningsins síðar í dag.