Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins jókst um 0,5% að raungildi samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2013, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofunnar .

Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 3%. Einkaneysla jókst um 2,8%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 12%. Útflutningur jókst um 5,1% og innflutningur um 10,8%.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014, án árstíðaleiðréttingar, dróst saman um 0,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,9% frá 2. ársfjórðungi 2014.