Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands.

Þá dróst einkaneysla saman um 1,6% og fjárfesting um 6,8%. Samneysla jókst hins vegar um 0,1%. Útflutningur dróst saman um 8,2% og innflutningur um 4,1% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.

Landsframleiðsla á 1. ársfjórðungi 2011, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 3,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs.