Vísbendingar eru um að landsmenn hafi verið að endurnýja rúm, húsgöng og stór og dýrari raftæki á borð við þvottavélar, ísskápa og eldunarbúnað, samkvæmt nýjustu upplýsingum Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. Á síðustu þremur mánuðum hefur raunaukning í sölu á húsgögnum aukist um 15,3% á milli ára en í raftækjum um 11,4%. Á sama tíma dróst sala á fötum, skóm og minni raftækjum saman um 8,1 til 2,8%.

Samkvæmt gögnum Rannsóknasetursins jókst velta í dagvöruverslun um 5,0% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 8,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu dagvöruverslana í nóvember 4,8% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 3,6% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Velta húsgagnaverslana var 12,1% meiri í nóvember en í sama mánuði í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 28,6% frá því í fyrra á föstu verðlagi og velta sérverslana með skrifstofuhúsgögn minnkaði um 8,3% á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum hækkaði um 0,9% í nóvember síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Þá jókst velta í sölu á tölvum í nóvember um 10,6% á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Farsímasalan jókst um 4,6% á sama tíma. Sala minni raftækja, svokallaðra brúnvara, dróst saman um 1,7% á föstu verðlagi en sala stærri raftækja, svokallaðra hvítvara, jókst um 13,8% á milli ára, að því er fram kemur í upplýsingum Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Nánari upplýsingar má skoða á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst .