Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var í dag, samþykktu eigendur tillögu stjórnar um arðgreiðslu til íslenska ríkisins að fjárhæð 10 milljarðar króna fyrir árið 2019.

Það er ríflega tvisvar sinnum hærri arðgreiðsla en á síðasta ári, þegar hún nam 4,25 milljörðum kr.  Árin þar á undan nam arðgreiðslan 1,5 milljörðum kr. árlega. Á fundinum kom fram að ríkið gerir arðsemiskröfu til eigin fjár Landsvirkjunar upp á 7,5%.

Á aðalfundinum skipaði fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið. Ekki voru gerðar breytingar á skipan stjórnar frá fyrra starfsári, en á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Álfheiður Ingadóttir var kjörin varaformaður.

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru:

  • Jónas Þór Guðmundsson
  • Álfheiður Ingadóttir
  • Jón Björn Hákonarson
  • Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir
  • Gunnar Tryggvason.

Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár, en hægt er að finna rafræna ársskýrslu og ársreikning Landsvirkjunar fyrir árið 2019 á vef félagsins . Deloitte ehf. var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar að fenginni tillögu Ríkisendurskoðunar.