Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar í BBB- úr BB+. Á það bæði við um langtímaskuldbindingar sem eru með og án ríkisábyrgðar. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Í mati S&P kemur fram að horfur séu metnar stöðugar. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfi ríkissjóðs um einn flokk í BBB+ úr BBB frá 15. janúar 2016.

Hörður Arnarson forstjóri:

„Þetta eru mjög góð tíðindi fyrir Landsvirkjun og staðfestir jákvæða þróun í rekstri sem byggir á bættum fjárhag og lækkun skulda. Að komast í fjárfestingaflokk án ríkisábyrgðar eykur traust lánveitenda og styður við starfsemi Landsvirkjunar meðal annars með bættu aðgengi að lánsfjármagni og lægri fjármagnskostnaði. Við munum áfram leggja megin áherslu á lækkun skulda og að styrkja rekstur fyrirtækisins enn frekar".