Orkustofnun veitti Landsvirkjun og RARIK ohf. rannsóknarleyfi á vatnasviði Hólmsár í Skaftártungu þann 21. ágúst 2009. Rannsóknarleyfið er veitt til þriggja ára og gildir til 31. desember 2012.

Þetta kemur fram á vef Orkustofnunar.

Þar kemur fram að leyfið tekur til rannsókna við að kanna hagkvæmni þess að reisa og reka vatnsaflsvirkjun í Hólmsá í Skaftártungu, svonefnda Hólmsárvirkjun. Takmarkast leyfið við þær framkvæmdir sem kveðið er á um í rannsóknaráætlun og eru á sviði vatnafræði og jarðfræði auk rannsókna í tengslum við mat á umhverfisáhrifum.

„Leiði framangreindar rannsóknir til þess að leyfishafi hafi hug á virkjun á rannsóknarsvæðinu er unnt að gefa út viðbótarleyfi varðandi rannsóknir er varða staðsetningu og fyrirkomulag mannvirkja og geta haft rask í för með sér,“ segir á vef Orkustofnunar en tekið er fram að leyfið felur ekki í sér heimild til nýtingar á vatnasviði rannsóknarsvæðisins.

Jafnframt kemur fram að við undirbúning að útgáfu leyfisins var leitað umsagnar umhverfisráðuneytis. Einnig var leitað umsagnar landeigenda í samræmi við stjórnsýslulög og umsagnar forsætisráðuneytis í samræmi við ákvæði laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda.