Landsvirkjun hefur sett sér reglur um keðjuábyrgð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Með setningu reglnanna er ætlað að tryggja að allir sem vinni fyrir Landsvirkjun á óbeinan hátt, til að mynda hjá verktökum, undirverktökum eða starfsmannaleigum, njóti réttinda og kjara í samræmi við lög og kjarasamninga.

Þetta var ákveðið af stjórn Landsvirkjunar í lok ágúst. Tekið er fram í fréttatilkynningunni að: „Ákvæði um ábyrgð verður héðan í frá sett inn í alla innlenda samninga Landsvirkjunar um innkaup, þ.e. verksamninga, vörusamninga og samninga um kaup á þjónustu. Samkvæmt ákvæðinu, sem sett verður inn í samninga Landsvirkjunar, skal verktaki tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við samninginn, gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni.

Að auki ber verktaki ábyrgð á og skal hafa í gildi og viðhalda tryggingum fyrir tjóni vegna slysa, veikinda, sjúkdóma, sjúkrakostnaðar eða dauða sem starfsmenn verktaka verða fyrir og rekja má til framkvæmda. Verktaki ber ábyrgð á að undirverktakar og starfsmannaleigur og starfsmenn þeirra hafi samskonar tryggingar.“

Haft er eftir Herði Árnasyni, forstjóra Landsvirkjunar, að fyrirtækið hafi ávallt lagt áherslu á því að undirverktakar þeirra færu eftir gildandi lögum og samþykktum, en að þessar reglur marka tímamót vegna þess að nú hafi Landsvirkjun úrræði ef reglur eru brotnar.