Tap á rekstri Landsvirkjunar eftir skatta nam 4,4 milljörðum króna. Ársreikningur fyrirtækisins var birtur í dag. Rekstrartekjur námu 48,6 milljörðum króna. Það er 3,7% hækkun frá árinu áður.

EBITDA hagnaður nam 37,8 milljörðum króna sem er 2,4% hækkun frá árinu áður. EBITDA hlutfall er 77,8% af tekjum, en var 78,8% árið áður. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 14 milljörðum króna og hækkar um 17,5% milli ára.

Fjárfestingar námu 17,2 milljörðum króna. Handbært fé frá rekstri eftir fjárfestingar var því 12,5 milljarðar króna sem nýtt er til lækkunar skulda og greiðslu arðs til eigenda.

„Árið 2013 var mesta raforkuvinnsla og sala í sögu Landsvirkjunar. Seldar voru 13.186 GWst sem er aukning um 416 GWst frá fyrra ári. Reksturinn gekk vel og að mestu áfalla­laust. Rekstrartekjur, EBITDA og hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði jukust á árinu. Þrátt fyrir þennan árangur í orkusölunni í erfiðu markaðsumhverfi var Landsvirkjun rekin með tapi á síðasta ári. Ástæðu þess má rekja til lækkunar á álverði á heimsmarkaði, sem kemur meðal annars fram í mikilli lækkun á bókfærðu verði innbyggðra afleiða, sem fyrirtækið getur haft takmörkuð áhrif á,“ segir Hörður Arnarson í tilkynningu.