Í dag opnuðu samgönguráðherra og skipstjórinn á Gullbergi VE-292, Sverrir Gunnlaugsson, nýtt langdrægt net 3G senda sem Síminn hefur komið fyrir með sjávarsíðu landsins.

Í tilkynningu frá Símanum kemur fram að nú er í fyrsta sinn komið síma- og netsamband á nærmiðum í kringum landið. Síminn mun ljúka við uppsetningu innan skamms.

„Langdrægt net 3G senda gerir sjómönnum kleift að nota farsíma sína rétt eins og þeir væru á landi, auk þess að bjóða upp á háhraða nettengingu með 3G netlykli, segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans í tilkynningunni.

Þetta er mikil bylting fyrir sjómenn, bæði atvinnulega og persónulega. Sjómenn geta nú verið í stöðugu sambandi við vini og vandamenn í landi, bæði með símtölum og myndsímtölum, og geta einnig notað netið og þau þægindi sem því fylgir; til að mynda greitt reikninga, hlustað á útvarpið eða lesið fréttir. Að auki er auðveldara fyrir skipin að vera í sambandi við útvegsfyrirtæki í landi. Það má því segja að einangrun á nærmiðum heyri sögunni til.“

Þá kemur fram að Langdræga 3G netið mun ná yfir alla sjávarsíðu Íslands og leysa gamla NMT kerfið af hólmi.

„NMT kerfið hefur gagnast okkur vel í gegnum tíðina, en nú er það orðið úrelt og hætt að framleiða það. Innan NMT kerfisins þurftir þú að vera á ákveðnum stað á skipinu til að hringja, á meðan þú getur talað hvar sem er um borð með 3G farsímanum. Langdræga 3G kerfið mun því ekki einungis leysa NMT kerfið af hólmi heldur mun það einnig vera töluverð samskiptabót.“ Segir Sævar Freyr og bætir við að NMT kerfið verði ekki lagt niður fyrr en 3G kerfið hefur náð fullri dreifingu og starfsgetu og viðskiptavinir Símans hafi haft tíma til að aðlaga sig að breytingunum.