Miðað við yfirtökutilboð Novator í Actavis sem samsvarar genginu 85,23 er verið að meta Actavis á 286 milljarða króna. Það er 23 milljörðum króna hærra verð en síðasta lokaverð gaf til kynna. Yfirtaka og afskráning Actavis er sú stærsta sem sést hefur í kauphöllinni til þessa.

Samkvæmt þessu er nú unnið að afskráningu þriggja fyrirtækja úr kauphöllinni en fyrir er 50 milljarða tilboð í Mosaic og um sjö milljarða króna tilboð í Vinnslustöðina.