Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur skipað Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlögmann í embætti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur. Skipað var í embættið frá og með 14. september 2015. Þetta kemur fram á vefsíðu innanríkisráðuneytisins .

Embættið var auglýst 12. júní og bárust sjö umsóknir. Í kjölfar var leitað umsagnar dómnefndar um hæfi umsækjenda og skilaði hún umsögninni 1. september síðastliðinn.

Niðurstaða dómnefndarinnar varð sú að Arnar Þór Jónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlögmaður og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir til að hljóta skipun í embættið.