Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 5,7% milli áranna 2012 og 2013 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þetta kemur fram í nýju hefti Hagtíðinda um vísitölu launa 2013. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 6,1% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 4,9%. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,1% en laun starfsmanna sveitarfélaga um 4,7%.

Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun skrifstofufólks mest á milli ára eða um 7,5% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 5,3%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 5,5% til 7,1%. Mest hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum en minnst í iðnaði.