Í fréttatilkynningu segir að forsvarsmenn Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis hafa gert með sér samkomulag um að leggja til við stjórnir sjóðanna að þeir verði sameinaðir. Jafnframt stendur nú yfir sameiningarferli Sparisjóðsins í Keflavík við Sparisjóð Vestfirðinga og Sparisjóð Húnaþings og Stranda.

Efnahagur sparisjóðanna er traustur og þeir hafa eflst til muna hin síðustu misseri. Áætlanir gera ráð fyrir því að stofnfé verði aukið í tengslum við sameininguna og að eigið fé sameinaðs sjóðs mun nema u.þ.b. 26,6 milljörðum króna. Ljóst er að sjóðirnir munu í sameiningu geta sinnt enn stærri verkefnum og eflt þjónustu við viðskiptavini sína.

Stjórnendur sjóðanna telja að ýmis tækifæri felist í sameiningu sparisjóða; útlána- og fjárfestingargeta mun aukast til muna og margs konar hagræði verður af nánara samstarfi. Allt verður þetta til heilla fyrir viðskiptavini sjóðanna og stofnfjáreigendur og svarar kalli tímans um alhliða þjónustu fjármálafyrirtækja.

Nú þegar er unnið að samrunaáætlun og nánari útfærslum. Endanleg ákvörðun um samruna er svo lögð fyrir fund stofnfjáreigenda sem gert er ráð fyrir að haldinn verði við fyrstu hentugleika. Samruni sparisjóða, eins og annarra fjármálastofnana er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlits