Heildarfjöldi þinglýstra leigusamninga á landinu var 618 í desember síðastliðnum og fækkar þeim um 5,8% frá því í nóvember þegar þeir voru 656 talsins. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands .

Leigusamningunum fjölgar hins vegar sé miðað við desembermánuð árið 2013, en þá voru þeir 611 talsins. Mest varð aukningin á höfuðborgarsvæðinu milli ára en leigusamningar þar voru 400 nú samanborið við 367 ári fyrr.