Landsvirkjun hefur ákveðið að leita tilboða í 45 MW vélasamstæðu og tilheyrandi búnað fyrir jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum með valrétti um kaup á viðbótarvélbúnaði fyrir allt að 90 MW virkjun. Útboð þessa efnis verður auglýst á næstu dögum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Stefnt er að frekari uppbyggingu jarðvarmavinnslu fyrirtækisins á Norðausturlandi og eru Þeistareykir sá kostur sem nú er horft til.  Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að frá því að rannsóknarboranir hófust á Þeistareykjum árið 2002 hafi verið staðið að umfangsmiklum rannsóknum og vöktun á svæðinu. Allur undirbúningur virkjunar sé í samræmi við úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum frá október 2010. Þá segir að útboðshönnun á allt að 90 MW jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum liggi nú fyrir.

Á Þeistareykjum hefur þegar verið aflað gufu til raforkuvinnslu sem samsvarar um 50 MW.