Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus birt fyrir helgi mynd af tilraunarbúnaði fyrir lendingarbúnað Airbus A350XWB vélarinnar. Búnaðurinn er settur upp í Filton í Englandi þar sem lendingarbúnaðurinn er jafnframt framleiddur.

Áætlað er að A350 vélinni verði fyrst reynsluflogið á seinnihluta næsta árs og að hún verði tilbúin til notkunar og afhendingar í lok árs 2014.

Frekari fréttir um A350 vélina má sjá í tengdum fréttum hér til hliðar.