Bandaríska kapalsjónvarpsstöðin FXX, sem er í eigu Fox sjónvarpsstöðvarinnar, mun sýna alla 600 þættina af Simpsons teiknimyndaröðinni í einu. Sýningin hefst þann 24. nóvember, sem er þakkargjörðardagur í Bandaríkjunum og lýkur ekki fyrr en þrettán dögum síðar, eða 6. desember.

Í frétt Entertainment Weekly segir að þetta sé lengsta sjónvarpsmaraþon sögunnar. Eldra metið var sett af FXX árið 2014, þegar 552 Simpsons þættir voru sýndir í röð yfir tólf daga tímabil.