Íslenskir lífeyrissjóðir eiga um 2.241 milljarð króna í lok maímánaðar, samkvæmt tölum Seðlabankans um hreina eign þeirra. Hrein eign hafði þar með hækkað um tæpa 4 milljarða frá apríl eða 0,2%.

„Innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða hækkaði um 17,7 ma.kr. og nam 1.633 milljörðum króna. Þar af hækkuðu skuldabréf útgefin Ríksissjóði Íslands um 13,4 ma.kr. milli mánaða og íbúðabréf um 4 ma.kr. Erlend verðbréfaeign lækkaði hins vegar um 16,2 ma.kr. frá apríl og nam 499 milljörðum í lok maí. Þar af lækkaði eign í erlendum hlutabréfasjóðum um 13,8 ma.kr. og erlend hlutabréf um 1,8 ma.kr. Af öðrum breytingum má nefna að skuld vegna afleiðusamninga lækkaði um 7,7 ma.kr. í mánuðinum og innlán lífeyrissjóða lækkuðu um tæpa 2 ma.kr. Þá lækkuðu aðrar eignir lífeyrissjóða um 3,3 ma.kr. í maí,“ segir á vef Seðlabankans.