Tímaritið World Finance hefur valið lífeyrissjóðinn Gildi sem besta lífeyrissjóðinn á Íslandi árið 2016.

Blaðið veitir slík verðlaun árlega, en þeir sjóðir sem hljóta verðlaunin hafa að áliti blaðsins skarað fram úr í því að auka traust og trúverðugleika á fjármálamarkaði með vinnubrögðum sínum.

Tilnefndi blaðið þrjá sjóði hér á landi til verðlaunanna en samtals fengu 39 lífeyrissjóðir frá jafnmörgum löndum verðlaun sem besti lífeyrissjóðurinn, hver í sínu landi.

Eignir Gildi lífeyrissjóðs nema 455 milljörðum króna, er hann þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins með rúmlega 46 þúsund virka sjóðfélaga og yfir 20 þúsund lífeyrisþega. Eiga samtals 200 þúsund einstaklingar réttindi í sjóðnum.