Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur aukið hlut sinn í Marel um 1,37%. Hlutur sjóðsins í félaginu er nú 5,82%. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Viðskiptablaðið sagði frá því í dag að Horn fjárfestingarfélag, sem heldur um hlutabréfaeign Landsbankans, hefur selt um 7% hlut í Marel. Horn er eftir sem áður annar stærsti hluthafinn í félaginu.