Linda Pétursdóttir, fyrrverandi Miss World, stofnaði í júní nýtt líkamsræktarfyrirtæki, Baðhús Lindu ehf. Er það skráð til húsa að Brautarholti 20 í Reykjavík. Á sama stað hefur Linda einnig verið með í rekstri Baðhússins sem ætlað er konum. Hún var þar líka með rekstur undir nafninu Iceland Spa & Fitness líkams- og heilsurækt, rekið undir nafni LP ehf., en hætti fyrir rúmu ári, að sögn starfsstúlku Baðhússins.

Tilgangur nýja fyrirtækisins er rekstur heilsuræktarstöðvar, nudd- og snyrtistofa, kaup og sala á skyldum vörum, lánastarfsemi, kaup og sala fasteigna ásamt ráðgjöf. Er Linda ein skráð stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi Baðhúss Lindu ehf.

Ekki er ljóst hvort verið er að breyta starfseminni í Brautarholti eða hugsanlega útvíkka hana. Linda er í fríi og segist í tölvupósti svara fyrirspurn við fyrsta tækifæri.