Þeir sem venja komur sínar á skyndibitastaði þegar mikið liggur við þurfa að sætta sig við lítið úrval á sjálfan aðfangadag því fáir skyndibitastaðir eru með opið á þeim degi.

Þetta kom í ljós eftir lauslega könnun Viðskiptablaðsins en haft var samband við veitingastaðina Aktu taktu, American Style, Dominos, Hlöllabáta, KFC, Metró, Serrano og Subway.

Ekki náðist í Metró en þeir sem fá yfir sig skyndibitaþörf á aðfangadag munu þurfa að gera sér Subway eða Serrano að góðu en allir hinir eru með lokað. Subway verður opið í Bankastræti og Kringlunni frá klukkan 10 til 13 og til klukkan 15 á BSÍ. Á Serrano verður opið til klukkan 15 á N1 á Hringbraut og Bíldshöfða.