Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2015 var 223,4 stig og hækkaði um 0,2% frá desember 2014. Þetta kemur fram í fréttum Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,0% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 0,6% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,2% (0%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,7% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% (0%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,3% (0,2%).

Miðað við janúar 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 14,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 14,0%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 24,8% og matvælaverð hefur hækkað um 0,5%.