Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] stendur nánast í stað frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.218 stigum. Vísitalan hefur hreyfst lítið í morgun. Mest hefur hún hækkað um 0,1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Kaupþing [ KAUP ] hefur lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er lítil eða aðeins 325 milljónir. Þar af eru 145 milljónir með bréf í Kaupþing, rúmlega 115 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst lítillega eða um 0,2% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 158,8 stig. Krónan hafði þó um tíma í morgun styrkst um 0,1%.