Gengisvísitalan er nú 152,4 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun markaða í morgun en aftur á móti veikst um 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,5 stig var fyrir helgi 152,1 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,5 krónum, Bandaríkjadalur í 75,6 krónum og Sterlingspundið í 149,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,2 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum